Íslandsmót í hestaíþróttum – Spáð í spilin í fjórgangskeppni
Jakob Svavar varð íslandsmeistari í fjórgangi árið 2017 á Júlíu frá Hamarsey. Hann er talinn sigurstranglegur í ár á Hálfmána frá Steinsholti
Íslandsmótið í hestaíþróttum hefst á Hólum í Hjaltadal miðvikudaginn 30.júní. Af því tilefni fékk Eiðfaxi þrjá hestamenn auk ritstjóra til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein og hverjir myndu berjast um titlana.
Við hefjum spádóminn á því að rýna í fjórgang en samkvæmt drögum að dagskrá er það fyrsta keppnisgrein mótsins.
Efstu fimm á stöðulista í meistaraflokki
1 Ragnhildur Haraldsdóttir Vákur frá Vatnsenda 7.70
2-3 Jakob Svavar Sigurðsson Hálfmáni frá Steinsholti 7.67
2-3 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi 7.67
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum 7.60
5 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal 7.57
Efstu fimm á stöðulista í ungmennaflokki
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Glymjandi frá Íbishóli 7,27
2 Hafþór Hreiðar Birgisson Háfeti frá Hákoti 7.03
3 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Stórstjarna frá Akureyri 6,97
4-7 Svanhildur Guðbrandsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri 6.93
4-7 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Skálmöld frá Eystra-Fróðholti 6.93
4-7 Katla Sif Snorradóttir Bálkur frá Dýrfinnustöðum 6.93
4-7 Hafþór Hreiðar Birgisson Hróður frá Laugabóli 6,93
Eyvindur Hrannar Gunnarsson – Gæðingadómari og hrossaræktandi í Danmörku

Meistaraflokkur:
Í fjórgangnum tel ég að Jakob og Hálfmáni frá Steinsholti taki titilinn, eftir að ég frétti að Ragnhildur og Vákur frá Vatnsenda verða ekki með þá tel ég ekki að nokkur annar geti skákað þeim tveimur. Ég var að vonast til að sjá þessa hesta á Heimsmeistaramóti í Herning í sumar en því miður hafði stjórn Feif ekki kjarkinn í að halda mótið.
Baráttan um 3.sætið verður á milli Jóhönnu Margrétar á Bárði frá Melabergi, Aðalheiðar Önnu á Óskari frá Breiðsstöðum og Hönnu Rúnar á Grími frá Skógarási.
Ungmennaflokkur
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki séð mikið af þessum knöpum og hestum uppá síðkastið en ég hef fylgst vel með úrslitum móta. Glódís Rún er sigurstranglegust á Glymjanda frá Íbishóli, en það er mjög jafnt á tölum á top 10 á stöðulistanum í næstu sætum á eftir henni. Og verður spennandi að sjá hvernig þetta fer.
Thelma Harðardóttir – Hestakona og þáttarstjórnandi í Fjórtakti hlaðvarpsþætti
Meistaraflokkur: Þetta er flokkur sem getur farið í allar áttir enda ofsalega stutt á milli hesta og topp 10 pörin eru þaulreynd! Jóhanna Margrét með Bárð, Hanna Rún með Grím og Jakob Svavar með Hálfmána hafa verið að sýna framúrskarandi reiðmennsku þetta tímabilið að mínu mati og verða í topp 3 er ég viss um. Ég held að Jakob og Hálfmáni vinni, Hálfmáni virðist alltaf sáttur og kátur og fer auðveldlega með verkefnið og ganglagið hans er sérstaklega skemmtilegt og mjúkt.
Ungmennaflokkur: Þetta er virkilega sterkur stöðulisti og þéttleikinn mikill í efstu sætunum. Ég held að Gyða Sveinbjörg með Skálmöld, Hafþór með Háfeti og Svanhildur með Aðgát muni öll gera sterka atlögu að topp sætunum en ég spái því að Glódís og Glymjandi muni ná fyrsta sætinu, samspilið þeirra er alveg frábært og þau hafa verið að gera frábæra hluti allt tímabilið!
Reynir Atli Jónsson – Reiðkennari og gæðingadómari

Meistaraflokkur: Tel nánast öruggt að Jakob og Hálfmáni sigri fjórganginn. Magnað dúó sem hefur bætt sig ótrúlega undanfarin ár. Aðrir líklegir eru Aðalheiður Anna, Mette Manseth og Jóhanna Margrét, grjótharðar konur og gefa ekkert eftir.
Ungmennaflokkur: Glódís og Glymjandi hljóta að vera líklegust þar en breiddin er töluverð og ég spái mikilli baráttu.
Gísli Guðjónsson – Ritstjóri Eiðfaxa
Meistaraflokkur: Það verður að teljast líklegt að röð á stöðulista gefi rökrétta mynd af því hverjir munu berjast um sigur í fjórgangi. Ragga Har mætir ekki til leiks með Vák og því verður baráttan á milli Jakobs Svavars og Hálmána, Jóhönnu Margrétar á Bárði og Aðalheiðar Önnu á Óskari.
Ungmennaflokkur: Ungmennaflokkurinn er að mínu mati örlítið meiri óvissa en meistaraflokkurinn. Glódís Rún á Glymjanda er þó án vafa sigurstranglegust en það þarf ekki mikið að gerast svo Hafþór Hreiðar á Háfeta, Ylfa Guðrún á Stjórstjörnu, Svanhildur Guðbrandsdóttir á Aðgát, Katla Sif á Bálki og Benedikt Ólafsson á Bikari blandi sér í titilbaráttu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH