Íslandsmót í hestaíþróttum – Spennan mikil fyrir kappreiðaskeiði

  • 27. júní 2021
  • Fréttir

Konráð getur orðið Íslandsmeistari þriðja árið í röð á Kjarki og í fjórða skipti alls fari svo að hann sigri í 250 metra skeiði

Íslandsmótið í hestaíþróttum hefst á Hólum í Hjaltadal miðvikudaginn 30.júní. Af því tilefni fékk Eiðfaxi þrjá hestamenn auk ritstjóra til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein og hverjir myndu berjast um titlana.

Síðast tókum við fyrir keppni í fjórgangi en nú er komið að því að spá fyrir um sigurvegara í 250 og 150 metra skeiði en samkvæmt drögum að dagskrá fara fyrri tveir sprettir í þeim greinum fram á miðvikudegi og seinni sprettir á fimmtudegi þar sem Íslandsmeistari verður krýndur.

Stöðulisti í P3 – 150 m skeið 

1 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 14,06
2 Árni Björn Pálsson Seiður frá Hlíðarbergi 14,11
3 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,17
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 14,19
5 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum 14,22

Stöðulisti í P1 – 250 m skeið 

1 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 21.23
2 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 21.36
3 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 21.57
4 Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2 21.75
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson Rangá frá Torfunesi 22.02

 

Eyvindur Hrannar Gunnarsson 

250 metra skeið

Spennan verður rafmögnuð í þessari grein, Sigursteinn og Konráð Valur hafa skipst á að vera með besta tímann síðastliðið ár og vænti ég þess að það verða barátta fram á síðasta sprett. Ef aðstæður eru góðar og hitastigið fer yfir 15 gráðurnar þá á ég von á að heimsmet Daníels Inga og Huldu frá Margrétarhofi gæti fallið. Sigursteinn og Krókus frá Dalbæ munu að lokum sigra á tímanum 21,05.

150 metra skeið

Þessi grein er í miklu uppáhaldi hjá mér og er frábær áhorfs, mér þykir það synd að ekki sé meira keppt í henni hérna á meginlandinu og vonast ég til að það muni breytast. Ótrúlegir tímar hafa náðst þetta síðasta ár og eru 20 hross undir 15 sekúndum á stöðulista LH.  Sigurður Vignir og Léttir frá Eiríksstöðum fara með sigur úr bítum. Í baráttunni um annað sætið mun Árni Björn og Seiður frá Hlíðarbergi eigja harða baráttu við Þórarinn Ragnarsson og Bínu frá Vatnsholti.

Thelma Harðardóttir

250 metra skeið

Ég spái Sigursteini og Krókusi góðu gengi í 250m, þeir eru feiknasterkir og munu örugglega gera sterka atlögu að 100m líka!   

150 metra skeið

Ég held með Sigga Matt og Létti og trúi því að þeir sigri hér líkt og á Reykjavíkurmeistaramótinu. Léttir virðist í feiknaformi þrátt fyrir að vera orðinn 21 vetra og það er alveg sérstaklega gaman að sjá!

Reynir Atli Jónsson – Reiðkennari og gæðingadómari

250 metra skeið

Sigursteinn og Krókus rétt merja Konráð og Kjark þarna í geggjuðum úrslita sprett. 

150 metra skeið

Ætla vera djarfur og spá Þórarni Ragnars og Bínu sigri. Ef það klikkar verð ég að birta gömul  vafasöm videó af helvítinu í refsingarskyni. 

Gísli Guðjónsson

Gísli Guðjónsson gæðingadómari LM2016

250 metra skeið

Skeiðgreinar bjóða oftar en ekki upp á mikla spennu og á því verður ekki breyting núna. Einvígi þeirra Sigursteins Sumarliðasonar á Krókusi og Konráðs Vals á Kjarki mun halda áfram og er ómögulegt að spá fyrir um hvor þeirra sigrar. Ég vona svo innilega að aðstæður á Hólum til kappreiða verði góðar og veðrið verði hagstætt þannig að við fáum góða tíma. Brautin á staðnum hefur sannað það að hún gefur mikla spyrnu og góða tíma samanber heimsmet Bjarna Bjarnasonar og Heru frá Þóroddsstöðum þar á LM2016.

150 metra skeið

Í mínum huga er meiri óvissa hver sigrar í þessari grein en í 250 og fleiri sem koma til greina. Ég spái því þó að baráttan verði á milli ríkjandi Íslandsmeistara í greininni, Þórarins Eymundssonar á Gullbrá frá Lóni, Árna Björns Pálssonar á Seiði frá Hlíðarbergi og Sigurður V. Matthíassonar á Létti frá Eiríksstöðum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link