Íslandsmót í Járningum
Járningamannafélag Íslands stendur fyrir fyrirlestri ásamt Sigga Sæm að Völlum í Ölfusi 23. október næstkomandi. Fyrirlestur er opinn öllum sem hafa áhuga á að fræðast um almennar járningar & hófhirðu. Einnig stendur gestum til boða að kaupa veitingar í hádeginu.
Íslandsmót í Járningum mun hefjast kl 14:00 á sama stað, og er skráning í keppnina opin öllum þeim sem vilja taka þátt, ekki krafa að vera virkur í járningamannafélagi Íslands.
Ef þú hefur áhuga á að keppa í járningum, þá þarf að skrá sig á email: jarningamenn@gmail.com fyrir þann 6. október.
Hvetjum sem flesta til að koma og vera með okkur þennan dag.