Íslandsmót: Jafnt á toppnum í slaktaumatöltskeppni

  • 16. júlí 2011
  • Fréttir
Íslandsmót: Jafnt á toppnum í slaktaumatöltskeppni

Keppni í slaktaumatölti var spennandi í ár. Sannkallað einvígi var milli Eyjólfs Þorsteinssonar og Ósk frá Þingnesi og Jakobs Svavars Sigurðssonar og Al frá Lundum II sem skáru sig frá öðrum keppendum. Enda fór það svo að þeir hlutu sömu lokaeinkunn, 8,50. Völdu dómararnir þá heimsmeistaramótsfarana sem sigurvegara.

Úrslit urðu eftirfarandi:
  1. Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi – 8,50
  2. Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II – 8,50
  3. Snorri Dal og Helgi frá Stafholti – 7,42
  4. Anna S. Valdemarsdóttir og Adam frá Vorsabæjarhjáleigu – 7,17
  5. Saga Melbin og Bárður frá Gili – 6,75
  6. Hrefna María Ómarsdóttir og Indía frá Álfhólum – 6,71

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link