Íslandsmót lauk á sigri heimsmeistaramótsfara

  • 16. júlí 2011
  • Fréttir
Íslandsmót lauk á sigri heimsmeistaramótsfara

Heimsmeistarafararnir Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri sýndu hvers þeir eru megnugir á sínu síðasta móti áður en þeir halda til Austurríkis, þegar þeir sigruðu fimmgangskeppni Íslandsmótsins. Viðar Ingólfsson og Már frá Feti urðu í öðru sæit og gamla brýnið Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum hlutu brons.

Þótt Þórarinn Eymundsson og Þóra frá Prestsbæ, sem komu efst inn í úrslit, hefðu þurft að sætta sig við 5. sæti eftir að skeiðsprettir skeikuðu gat Þórarinn þó verið kátur með árangurinn enda varð hann Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum.

Úrslit fimmgangsins urðu eftirfarandi:
  1. Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri – 7,90
  2. Viðar Ingólfsson og Már frá Feti – 7,88
  3. Reynir Aðalsteinsson og Sikill frá Sigmundarstöðum – 7,55
  4. Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur frá Efri-Þverá – 7,55
  5. Þórarinn Eymundsson og Þóra frá Prestsbæ – 7,17
  6. Birna Tryggvadóttir og Röskur frá Lambanesi – 0

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link