Íslandsmót og Landsmót haldið saman

  • 28. október 2022
  • Fréttir
Það styttist í Landsþing Landssambands hestamannafélaga

63. landsþing Landsambands hestamannafélaga verður haldið í Reykjavík dagana 4. – 5. nóvember. Inná heimasíðu félagsins er hægt að sjá þær tillögur sem munu verða lagðar fyrir þingið og gaman fyrir áhugasama að kynna sér þær.

Meðal annars eru tvær tillögur lagðar fram tengdar Íslandsmóti og er önnur þeirra frá keppnisnefnd LH (þingskjal nr. 15).

Í þeirri tillögu er verið að leggja fram breytingu á reglugerð 5. Reglugerð um Íslandsmót. Er verið að leggja til að á Landsmótsári verið Íslandsmót fullorðinna haldið samhliða Landsmóti og Íslandsmót yngri flokkanna sér og án gæðingakeppninnar.  Þegar ekki er Landsmótsár á þá sé haldið Íslandsmót í íþrótta- og gæðingakeppni, eitt mót fyrir fullorðna og ungmenni saman og annað mót fyrir barna og unglinga saman.

Áhugaverð tillaga sem mikil umræða var um í tenglsum við Landsmótið í ár.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link