Íslandsmót: Sigur íslandsmeistari í fjórgangi
Nokkrar sviptingar urðu í fjórgangskeppni Íslandsmótsins.
Fyrirfram var Olil Amble og Kraflar frá Ketilsstöðum sigurstrangleg, enda komu þau efst inn í úrslit, og hlutu meðal annars tvær 9,5 og eina 9 frá dómurum fyrir tölt, skeikaði hins vegar örlítið í brokki og varð þannig af titlinum. Enn heitur eftir töltúrslitin sýndu Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki mátt sinn og megin og skutu sér úr fjórða sæti í það fyrsta með öruggri sýningu. Olil og Kraflar hlutu silfur og Hulda Gústafsdóttir og Sveigur frá Varmadal fékk brons.
Hinrik varð einnig íslandsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum.
Úrslit fjórgangskeppninnar urðu eftirfarandi:
-
Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – 8,07
-
Olil Amble og Kraflar frá Ketilsstöðum – 8,00
-
Hulda Gústafsdóttir og Sveigur frá Varmadal – 7,97
-
Eyjólfur Þorsteinsson og Hlekkur frá Þingnesi – 7,93
-
Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Þórir frá Hólum – 7,80
-
Jakob Svavar Sigurðsson og Asi frá Lundum II – 7,50
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH