Íslandsmót yngri flokkana
Það er hestamannafélagið Fákur sem halda mun Íslandsmót yngri flokka á næsta ári og hefur mótinu verið fundin dagsetningin 17. – 20. júlí 2014.
Mótið verður á næsta ári hápunktur íþróttakeppninnar hjá yngri kynslóðinni og þar munu okkar framtíðarknapar öðlast mikilvæga keppnisreynslu, vinna sigra og taka þátt í skemmtilegu móti og efla félagslega þáttinn um leið.
Það verður vel tekið á móti yngri kynslóðinni í Fáki 17. – 20. júlí á næsta ári, sem og endranær og allir velkomnir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH