Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum 2020 aflýst

  • 6. ágúst 2020
  • Fréttir

Mynd: Bjarney Anna Þórsdóttir

Stjórn Landssambands hestamannafélaga hefur tekið þá ákvörðun að aflýsa fyrirhuguðu Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum sem halda átti 12. til 16. ágúst 2020.

Við þessar fordæmalausu aðstæður sem COVID-19 veiran hefur kallað yfir heimsbyggðina hefur Landssamband hestamannafélaga haft samfélagslega ábyrgð í forgrunni við allar ákvarðanatökur sem við höfum staðið frammi fyrir og er svo einnig núna.

Við teljum ekki forsvaranlegt í ljósi aðstæðna að Íslandsmótið 2020 verið haldið og höfum því ákveðið, í samráði við Hestamannafélagið Geysi, að aflýsa því.

F.h. stjórnar

Lárus Ástmar Hannesson
formaður Landssambands hestamannafélaga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar