Íslandsmótið: Jakob og Árborg unnu B-úrslit í tölti
Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey unnu sig upp í A-úrslit töltkeppni Íslandsmótsins í firnasterkum B-úrslitum. Hlutu þau 8,28 í lokaeinkunn. Jakob og Árborg munu því etja kappi við efstu keppendur á morgun í A-úrslitum kl. 13 en sýnt verður beint frá úrslitunum á RÚV.
Úrslit urðu eftirfarandi.
1. Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey 8,28
2. Steingrímur Sigurðsson og Mídas frá Kaldbak 8,22
3. Hulda Gústafsdóttir og Sveigur frá Varmadal 7,89
4. Ólafur Ásgeirsson og Sædynur frá Múla 7,61
5. Jón Þorberg Steindórsson og Tíbrá frá Minni-Völlum 7,50
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni