Íslandsmótsstaðir 2013 og 2014
Íslandsmót fullorðinna 2013 verður haldið Borgarnesi á mótssvæði Faxa. Íslandsmót yngri flokka 2013 verður hins vegar haldið á Akureyri á mótssvæði Léttis. Kosið var um þetta á LH þingi. Kosningin gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig. Eftir handauppréttingu þegar kosið var um Íslandsmótið fullorðinna 2013 munaði aðeins einu atkvæði. Kosið var milli Fáks og Faxa og Fákur hafði betur. Ámundi Sigurðsson fór þá fram á skriflega kosningu. Ekki voru allir sammála um að það væru rétt fundasköp, en kosningin fór þó fram og Faxi hafði þá betur með allmiklum mun. Íslandsmót fullorðinna 2014 verður svo haldið í hjá Sörla í Hafnarfirði og Íslandsmót yngri flokka í Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH