Íslendingar áberandi

  • 25. október 2019
  • Fréttir

Daníel Ingi Smárason er tilnefndur til kynbótaknapa ársins í Svíþjóð

Svíar hafa gefið út tilnefningar til hrossaræktarbúa ársins sem og kynbótaknapa ársins

Svíar hafa gefið það út hvaða hrossaræktarbú eru tilnefnd til ræktunarverðlauna í ár auk þess að kynna hvaða kynbótaknapar eru tilnefndir til kynbótaknapa ársins.

Það vekur athygli að Daníel Jónsson er tilnefndur til kynbótaknapa ársins og er því tilnefndur til þeirra verðlauna bæði hér heima á Íslandi og í Svíþjóð, frábær árangur hjá honum. Þá eru allir þeir knapar sem tilnefndir eru fæddir og uppaldir á Íslandi.

Fimm ræktunarbú eru tilnefnd til ræktunarverðlauna og má sjá meðaltöl þeirra hér neðar í fréttinni.

Hér má sjá þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru

 

Ræktunarbú Fjöldi sýndra hrossa Meðaltal sköpulags Meðaltal hæfileika Meðaltal aðaleinkunnar Meðalaldur Hlutfall hryssa úr árgöngum 2012, 2013,2014
BACKOME 4 8,56 8,38 8,45 6,8 83,3%
GUNVARBYN 7 8,44 8,06 8,21 6,0 45,5%
LILLA STRÄCKÅS 3 8,25 7,99 8,09 6,3 50%
SKÁNEYLAND 5 8,12 7,84 7,95 5,8 25%
STALL VITAVILLAN 2 8,15 8,39 8,25 7,5 100%

 

Hér má sjá tilnefnda knapa í flokknum kynbótaknapi ársins

Knapi Fjöldi sýndra hrossa Fjöldi hrossa sýnd í fyrsta skipti Meðalaldur Meðaltal aðaleinkunnar
Daníel Jónsson 9 7 6,2 8,18
Daníel Ingi Smárason 14 10 7,1 7,83
Eyjólfur Þorsteinsson 18 8 7,0 7,98
Erlingur Erlingsson 37 18 6,9 8,03
Vignir Jónasson 6 0 7,0 8,28

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link