Norðurlandamót Íslendingar í þremur efstu sætunum

  • 5. ágúst 2026
  • Fréttir

Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli með örugga forustu eftir forkeppni í tölti T1 Mynd: CL Foto

Tíu íslensk ungmenni tóku þátt í tölti T1 á Norðurlandamótinu

Dagur tvö á Norðurlandamótinu hófst í morgun kl. 7 á keppni í ungmennaflokki. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagurinn hófst á forkeppni í tölti T1 í ungmennaflokki en 26 keppendur mættu til leiks. Íslendingar áttu tíu fulltrúa í flokknum og röðuð þau sér í efstu sæti.

Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli eru að gera gott mót í Svíþjóð en þeir eru með nokkuð örugga forustu með 7,50 í einkunn. Þeir standa einnig efstir eftir forkeppni í ungmennaflokki.

Á eftir þeim eru þær Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti í öðru sæti með 6,93 og í þriðja Hekla Rán Hannesdóttir á Tind frá Árdal með 6,83 í einkunn. Elva Rún Jónsdóttir á Kvasa frá Steinnesi, Fanndís Helgadóttir á Ötul frá Narfastöðum og Elísabet Líf Sigvaldadóttir á Dygg från Stummelbol nældu sér í sæti í B úrslitum.

Hægt er að nálgast allar niðurstöður, ráslista og annað á snjallforritinu HorseDay.

Niðurstöður úr forkeppni í tölti T1 í ungmennaflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jón Ársæll Bergmann Viskusteinn frá Íbishóli 7,40
2 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 6,93
3 Hekla Rán Hannesdóttir Tindur frá Árdal 6,83
4 Óskar Erik Kristjánsson Kjarkur frá Vorsabæ II 6,67
5 Lára Gardarsdottir Hesselman Álfur från Knutshyttan 6,63
6 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 6,57
7 Elva Rún Jónsdóttir Kvasir frá Steinnesi 6,50
8 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum 6,40
9 Pernille Hansen-Christiansen Bakkus fra Grundet Hus 6,33
10 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Dyggur från Stummelbol 6,30
11 Molly Eriksson Erró frá Ármóti 6,30
12 Sara Dís Snorradóttir Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 6,23
13-14 Frøydis Musdalslien Kormákur frá Miðhrauni 6,07
13-14 Guðmar Hólm Líndal Arthúr frá Baldurshaga 6,07
15 Linnea Søby Alvin fra Kringeland 5,83
16 Bianca Söderholm Skálmöld frá Skáney 5,80
17-18 Rebecca Hesselbjerg Taulborg Tindra fra Kirstineholm 5,77
17-18 Filippa Gram Kristall frá Skagaströnd 5,77
19 Þórgunnur Þórarinsdóttir Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan 5,73
20 Julie Thorsbye Andersen Aron frá Þóreyjarnúpi 5,50
21 Maiken Berild Vold Kaspar frá Steinnesi 5,40
22 Guðný Dís Jónsdóttir Laki från Adalgården 5,30
23 Thea Oxaas-Egge Dans fra Sigersberg 5,17
24 Vilma Mätäsniemi Hvammur frá Hvolsvelli 4,93
25 Hermine Oline Gude-Karlsen Silfri frá Mið-Fossum 4,17
26 Klara Nydahl Dagur frá Ketilsstöðum 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link