Íslendingunum gekk vel í kappreiðunum
Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk Myndir: Cassandra Laikmets/CLfoto
Fyrsta umferð í 250 m. skeiði er lokið á Norðurlandamótinu en seinni umferðin er á morgun, föstudag.
Kristján Árni Birgisson og Krafla frá Syðri-Rauðalæk eru með besta tímann í fullorðinsflokki eða 22,94 sek. Beggi Eggertsson og Fjalladís frá Fornusöndum eru með sjöunda besta tímann.
Dagur Sigurðsson og Galbjartur frá Hóli er með besta tímann í ungmennaflokki, 23,93 sek. og Þórgunnur Þórarinsdóttir er með fjórða besta tímann á Tófu Þorvardóttir fran Stall Vitavillan.

Dagur Sigurðsson og Galbjartur frá Hóli
Í unglingaflokki var það bara Vera Elgholm og Dreki fran Lind sem náðu tíma, 24,91 sek.
Hægt er að fylgjast með Norðurlandamótinu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Eftir skeiðið er komið að fjórgangi í unglingaflokki og síðan B og A úrslitum í gæðingakeppninni.
Niðurstöður úr fyrri umferðinni í 250 m. skeiðinu
| Fullorðinsflokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Kristján Árni Birgisson | Krafla frá Syðri-Rauðalæk | 22,94 |
| 2 | Natalie Fischer | Ímnir fra Egeskov | 23,46 |
| 3 | Daníel Ingi Smárason | Sif från Lindhof | 23,50 |
| 4-5 | Tania Højvang Jensen | Glúmur frá Þóroddsstöðum | 23,84 |
| 4-5 | Liv Runa Sigtryggsdottir | Baltasar frá Strandarhjáleigu | 23,84 |
| 6 | Wictoria Gren | Kjarval fra Søtofte | 24,08 |
| 7 | Beggi Eggertsson | Fjalladís frá Fornusöndum | 24,09 |
| 8 | Viivi Soimes- Mattila | Mestur fra Lífsvatn | 25,76 |
| 9 | Maren Øyo | Abel fra Røysland | 25,91 |
| 10 | Katie Sundin Brumpton | Kolbeinn från Fögruhlíð | 27,38 |
| 11-12 | Gudmundur Einarsson | Draumur från Tängmark | 0,00 |
| 11-12 | Sigurður Narfi Birgisson | Randver frá Þóroddsstöðum | 0,00 |
| Ungmennaflokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Dagur Sigurðarson | Galbjartur frá Hóli | 23,93 |
| 2 | Sara Gardarsdottir Hesselman | Herkúles från Knubbo | 24,31 |
| 3 | Johanna Kirstine Nielsen | Maja fra Skindbjerg | 25,10 |
| 4 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan | 25,49 |
| 5 | Vilma Marie Ostergaard | Glæsir fra Rist | 25,60 |
| 6 | Kanerva Niemi | Sinfónia fra Kaakkola | 26,36 |
| 7 | Olivia Agerhill | Júlía från Agersta | 27,06 |
| Unglingaflokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Vera Elgholm | Dreki från Lind | 24,91 |
| 2-3 | Tilda Brandes | Jara frá Horni I | 0,00 |
| 2-3 | Majken Roström | Arfur frá Steinskoti 1 | 0,00 |
Íslendingunum gekk vel í kappreiðunum
Endurtók leikinn tíu árum seinna