Íslensk hrossarétt í Bejing
Bandaríkjamennirnir Paul Taggart og Libdsey Blatt sem unnu að töku heimildarmyndar sinnar „Herd in Iceland“ í Laufskálarétt á dögunum, hafa víða komið við. Viðtal við þau birtist meðal annars í þekktu fréttablaði í Peking þar sem rætt var við þau um verkefnið hér á Íslandi.
Annars eru þau mjög þekktir blaðamenn og starfa mest fyrir New York Times. Paul Taggart er þekktur fyrir fréttamennsku og myndatökur í stríðshrjáðum löndum og hefur unnið til dæmis í Írak og Libanon meðal annars. Myndirnar hér eru af tveimur opnum úr blaðinu í Peking.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH