Íslensk ræktun áberandi á Mið-Evrópumótinu í Þýskalandi
Ósk frá Stað var eitt af þeim íslensku hrossum sem efst stóð í sinni grein. Hér á myndinni ásamt Helgu Unu á HM2025. Ljósmynd: Henk & Patty
Á sama tíma og Norðurlandamótið var haldið í Svíþjóð fór Mið-Evrópumótið fram í Ellenbach í Þýskalandi dagana 5. til 9. ágúst. Á mótinu eiga þátttökurétt knapar frá tólf aðildarríkjum FEIF og er keppt bæði í fullorðins- og ungmennaflokki.
Hestakostur á mótinu þótti afar góður; einkunnir voru háar í hringvallargreinum og sömuleiðis náðust glæsilegir tímar á skeiðbrautinni.
Eftirtektarvert er hversu sigursæl íslensk ræktun var á mótinu. Í þeim sextán keppnisgreinum sem keppt var í á mótinu var sigurhrossið ræktað á Íslandi í hvorki meira né minna en ellefu tilfellum.
Hér fyrir neðan má sjá alla sigurvegara mótsins í bæði fullorðins- og ungmennaflokki, ásamt einkunn eða tíma.
Fullorðnir
- Fjórgangur V1 – Frauke Schenzel – Hulinn frá Breiðstöðum: 7,87
- Fimmgangur F1 – Lisa Schürger – Byr frá Strandarhjáleigu: 7,40
- Tölt T1 – Frauke Schenzel – Sólfaxi frá Herríðarhóli: 8,39
- Tölt T2 – Stefan Schenzel – Ósk frá Stað: 8,21
- Gæðingaskeið – Laura Enderes – Fannar von der Elschenau: 8,88
- 250 metra skeið – Simon Pape – Gleði fra Egholm: 22,85 sekúndur
- 150 metra skeið – Vera Weber – Hnoppa frá Árbakka: 14,63 sekúndur
- 100 metra skeið – Vicky Eggertsson – Ylfa frá Miðengi: 7,67 sekúndur
Ungmenni
- Fjórgangur V1 – Daniel Rechten – Óskar från Lindeberg: 7,23
- Fimmgangur F1 – Maria-Chiara Timm – Nói frá Stóra-Hofi: 6,43
- Tölt T1 – Daniel Rechten – Óskar från Lindeberg: 7,50
- Tölt T2 – Leni Köster – Rögnir frá Hvoli: 6,79
- Gæðingaskeið – Maria-Chiara Timm – Nói frá Stóra-Hofi: 7,21
- 250 metra skeið – Joséphine Williams – Lér frá Valhöll: 22,63 sekúndur
- 150 metra skeið – Mylou Suylen – Leiknir vom Akazienhof: 14,57 sekúndur
- 100 metra skeið – Tabitha Hoffeld – Kló frá Einhamri 2: 7,83 sekúndur
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð