Íslenski hesturinn á FEI World Cup í Herning
Um helgina fór fram keppni í dressúr í Herning í Danmörku en mótið er partur af FEI World Cup Series 2021-2022. Þarna mættu stærstu nöfn dressúr hestaheimsins en var mótið fyrsti viðburðurinn í mótaröðinni.
Eiðfaxi heyrði í Nils Christian Larsen en honum ásamt fjórum öðrum knöpum var boðið að vera með sýningu á íslenska hestinum á viðburðinum. „Mér var boðið og ég tók með mér fjóra knapa, Pernille Lyager Möller, Trine Risvang og Filippa Montan. Við sýndum gagntegundir hestsins, síðan komu olympísku dressúr knaparnir með þjálfurum sínum og var boðið á bak,“ segir Nils en dressúrknapinn Carina Cassøe Cruth reið Flaumi frá Sólvangi og þjálfarinn hennar, Andreas Helgestrand, reið Kristali frá Jaðri. Olympíuknapinn Nanna Merald reið Thór-Steini frá Kjartansstöðum og þjálfarinn hennar, Michael Søgaard, reið Rökkri frá Ytra-Vallholti. „Það var geðveikt að fá 20 mín. sýningu á World Cup í dressúr í Herning,“ bætir Nils við.

Nils Christian Larsen og Carina Cassøe Cruth
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH