Íslenski hesturinn ekki séreign
Íslendingar frestuðu Landsmóti hestamanna 2010 vegna hrossapestarinnar og tóku ákvörðun um að halda það 2011. Þrátt fyrir að FEIF og Austurríkismenn, sem halda heimsmeistaramót næsta sumar, hafi lýst sig mótfallna. Heiðursmannasamkomulag hefur verið um að þessir tveir stórviðburðir séu ekki haldnir á sama ári. Á vef FEIF er fjallað um þessa tvo viðburði. Þar kemur skýrt fram að stjórn FEIF vill ekkert koma nærri LM2011 og telur það ekki FEIF viðburð. Samtökin muni því ekki taka þátt í Landsmóti 2011 á nokkurn hátt. En muni taka upp þráðinn að nýju fyrir LM2012. Það er því ljóst að Íslendingar geta ekki lengur stólað á samúð vina í útlöndum, þrátt fyrir óáran. Íslenski hesturinn er ekki lengur séreign. Íslensk hross eru mun fleiri í útlöndum en á Íslandi. Þegar hagsmunir skarast hugsar hver um sig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári