”Íslenski hesturinn er undur”
Í Eiðfaxa sem kemur út eftir helgina er skemmtilegt viðtal við hestakonuna Karen Sif Kristjánsdóttur. Karen á nokkra hesta og stundar hestamennskuna sér til ánægju og lífsfyllingar. Hér er stuttur kafli úr viðtalinu:
Hestamennskan er aðaláhugamálið og hefur alltaf verið. „Hesthúsið er eini staðurinn þar sem ég hugsa ekki um neitt annað, það er griðarstaður minn. Maður fær þar frið frá öllu utanaðkomandi áreiti. Þar er mikið af skemmtilegu fólki og það er gaman að hitta fólk sem hefur sama áhugamál. Þetta er pínu frí á hverjum degi, þótt það geti verið heilmikil vinna að fara upp eftir á hverjum degi eins og ég geri yfirleitt, þá er það algjörlega þess virði.“
Hvað ætli íslenski hesturinn sé í huga Karenar Sifjar? „Hann er táknmynd frelsis. Svo er það: Knapi á hestbaki er kóngur um stund. Þegar maður fer út í náttúruna á hestbaki líður manni eins og maður sé alveg frjáls. Íslenski hesturinn er náttúrulega undur. Maður sér bara hvað hann er vinsæll úti í heimi. Það er eitthvað við hann. Hann á sér enga líka. Hestamennskunni fylgir frelsi, fegurð og ríkidæmi. Er maður ekki ríkur ef maður á nokkra hesta? Mér finnst það að minnsta kosti.“
Áskrifendur geta lesið allt viðtalið auk annars efnis í blaðinu í rafrænu útgáfunni hér á Eiðfaxa vefnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH