Íslenski hesturinn í Sjónvarpi í USA – myndband
Guðmar Þór Pétursson er flestum hestamönnum kunnur. Hann býr í Bandaríkjunum þar sem hann rekur hrossabú og hestamiðstöð…
Guðmar er mjög virkur í markaðsstarfi fyrir Íslenska hestinn og tekur árlega þátt í sýningum til þess að kynna hann. Í framhaldi af stórri sýningu nú í haust var Íslenska hestinum gerð skil í vinsælum sjónvarpsþætti. Eiðfaxi fékk að vita meira um málið.
Guðmar Þór: „Þegar við vorum á World Equistrian Games. Var gerður sjónvarpsþáttur um okkur þar sem Rick Lamb þulurinn og framleiðandinn fékk að reiðtíma hjá mér og fékk svo að ríða með okkur í sýningar æfingu. Rick ríður Pegasus frá Skyggni og gékk það bara býsna vel.
Rick er vel þekktur í Bandaríkjunum hann er með þennan sjónvarpsþátt sem heitir´´ The horse show with Rick Lamb´´ og svo er hann líka með útvarpsþátt. Hann hefur einnig séð um tamningarkeppnina frægu ´´road to the horse´´ sem Clinton Anderson, Chris Cox, Stacy Westfall og John Lyons hafa unnið mjög eftirminnilega.
World Equistrian games er stærsta hestamót í heimi, við sýndum þarna í átta daga 30 mínútur í senn, bland af kennslusýningu og showi.
The Horse show with Rick Lamb er sýnt á RFDTV sem er sjónvarpsstöð aðallega með hestaþætti, Clinton, Chris, Pat Parelli og fleiri eru líka með kennsluþætti þarna.
Ég er búinn að fá þó nokkur viðbrögð út af þessu, það eru sennilega milljónir sem sjá þetta, ég tel að þarna sé um að ræða gríðarlega markaðssetningu“. Sagði Guðmar að lokum. Eiðfaxi mun fylgjast með markaðsstarfinu fyrir vestan af áhuga. Sjónvarpsþáttinn má sjá HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári