Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

  • 17. janúar 2012
  • Fréttir
Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun laugardag 11.febrúar kl. 10.00 – 16.00.

Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun. Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun. Markhópur ráðstefnu eru þeir  sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa.

Dagskrá:

10.00 – 12.00              Félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ

10.00 – 10.15              Kynning á verkefnum starfshóps um þessi mál og  dagskrá námskeiðs: Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF

10.15. – 10.35.            Kynning á sjúkraþjálfun á hestbaki: Guðbjörg Eggertsdóttir og Þorbjörg Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfarar Æfingastöðvar SLF    

10.35. –  11.00.            Kynning á starfi fyrir fatlaða innan Hestamannafélagsins Harðar  
                                    Auður Sigurðardóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra: Kynning á leiðtoganámskeiðum
                                    Þórhildur Þórhallsdóttir, Hestamennt

11.00 – 11.20.             Kynning á knapamerkjakerfi: Sigrún Sigurðardóttir, reiðkennari

11.20. –11.40.            Kynning á hlutverki hestsins & félagslegur þáttur: Ásta Pétursdóttir, geðhjúkrunarfræðingur

11.40. – 12.00.            Spurningar og umræður

12.00 – 13.00              Hádegisverður

13.00 – 15.00            Reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ
                                  Sjúkraþjálfun á hestbaki                     Stutt kynning
                                  Kynning á keppnisfyrirkomulagi         Helstu atriði kynnt

15.00  – 16.00            Lok námskeiðs og samantekt

Þátttökugjald er kr. 3.000. –
Innifalið er hádegisverður og kaffi.

Vinsamlega staðfestið skráningu fyrir þriðjudag 7 febrúar 2012 í netfang;
[email protected]        Íþróttasamband fatlaðra
[email protected]    Hestamannafélagið Hörður

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link