Íslenski hesturinn þekktur í þýsku teknó senunni
Það er ekki á hverjum degi sem þeir félagar Frosti og Máni ræða um Íslenska hestinn í útvarpsþætti sínum Harmageddon á x-977.
Í morgun hringdu útvarpsmennirnir í þætti sínum í einhverja mestu stjörnu heims í heimi dans tónlistar, en sá heitir
Paul Kalkbrenner, og er þýskur.
Þegar stjarnan var spurð um þekkingu sína á Íslandi var hann með eina staðreynd á hreinu, að Íslenski hesturinn hefði fleiri gangtegundir en aðrir hestar.
Þetta hljóta að teljast augljós merki þess að hróður Íslenska gæðingsins berist enn víðar en við höldum !
Nánar um málið á vef Harmageddon
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH