Íslenskir hestamenn í útlöndum

  • 15. nóvember 2011
  • Fréttir
Íslenskir hestamenn í útlöndum

Reynir Atli Jónsson útskrifaðist frá reiðkennaradeild Hólaskóla árið 2007 og starfar nú í Þýskalandi við þjálfun og kennslu…

Eiðfaxi hitti Reyni á dögunum í Suður Þýskalandi þar sem hann var að þjálfa hross á búinu Wirthsmuhle í Beyern.
Hve lengi hefurðu b úið og starfað í Þýskalandi?
Ég var fyrst hér á Sunnuholti í Beyern árið 2009 og hef verið hér síðan alltaf svona 2-3 vikur í senn 2-3 sinnum á ári. Ég á orðið þýska kærustu og er nú kominn hingað til að vera. Veit ekki hvort ég sæki um ríkisborgararétt, ég er of mikill Íslendingur í mér til þess.
Hver er ástæða þess að þú kýst að starfa hér frekar en heima á Íslandi?
Ég er að norðan frá Þórshöfn í Norður Þingeyjarsýslu og þar eru svosem ekki miklir möguleikar. Hér í Suður Þýskalandi held ég að miklir möguleikar séu fyrir menntaða hestamenn. Frístundareiðmenn hér í landi eru fróðleiks þyrstir og sækja gjarna námskeið þannig að kúnna hópurinn mótast fljótt. Eins er fólk hér reiðubúið til að borga meira fyrir þjónustu heldur en heima. Hér í þýskalandi kostar þjálfun  um það bil 500-700 Evrur á mánuði eða um 80-100.000.- Íslenskar krónur.
Viðtalið verður allt birt í næsta tölublaði Eiðfaxa.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link