Íslenskt fæddir hestar á toppnum í Danmörku

  • 24. maí 2021
  • Fréttir

Prúður frá Auðsholtshjáleigu er í efsta sæti í fimmgangi ásamt Vaka frá Auðsholtahjáleigu. Hér er Prúður í keppni með Sigurð V. Matthíasson á baki.

Fréttir berast nú af góðum árangri í hinum ýmsu keppnum á meginlandi Evrópu. Um helgina fer fram sterkt mót í Danmörku þar sem nokkrir knapar náðu góðum árangri og vekur athygli hversu margir hestanna eru fæddir á Íslandi. Mótiðsem um ræðir heitir Tvisturs Pinsestævne.

Í fimmgangi vekur athygli að tveir hestar frá Auðsholtshjáleigu voru jafnir í efsta sæti eftir forkeppni með einkunnina 7,10. Þetta voru þeir Prúður, sem sýndur er af Julie Christiansen, og Vaki, sem Ramus Moller Jensen sýnir.

Í fjórgangi eru einnig tveir knapar efstir á toppnum með einkunnina 7,30. Trine Risevang situr á Hraunari frá Hrosshaga en jafn henni er Dennis Hedebo Johansen á Muna fra Bendstrup.

í tölti er Frederikke Stougård í 1.sæti með Austra frá Úlfsstöðum og einkunnina 8,07

Julie Christiansen og Felix frá Blesastöðum 1A eru svo í forystu í slaktaumatölti með 7,60 í einkunn.

Það er því ljóst að þessi hestar eru ræktendum sínum til sóma í keppni á erlendri grundu og minna á það að Ísland hefur mikið fram að færa vilji fólk eignast góð keppnishross.

Skoða má fleiri úrslit af mótinu með því að smella hér en keppni heldur áfram þar í dag.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link