Íslenskur meistarahringur frá SIGN

  • 30. júní 2023
  • Fréttir
Nýr verðlaunagripur á Íslandsmótinu í hestaíþróttum í ár

Boðið verður upp á nýjung í verðlaunagripum á Íslandsmótinu í hestaíþróttum í ár. Gullsmiðurinn Sigurður Ingi Bjarnason og Katla Guðmundsdóttir skartgripahönnuður hjá SIGN hafa hannað og smíðað sérstakan hring fyrir Íslandsmeistarana. Ekki er óþekkt erlendis að meistarar í íþróttum fái hring til minningar um sína stærstu sigra, en ekki er vitað til þess að slíkt hafi verið gert hér á landi, amk. ekki í hestaíþróttum.

Hringurinn vísar til hestamennskunnar og titilsins á ýmsan máta, hann er lagaður þannig að formið minnir bæði á ístað og skeifu. Auk þess er orðið Íslandsmeistari grafið inn í hringinn og ártalið steypt á framanverðan hringinn.

Öll þau sem hampa munu Íslandsmeistaratitlum á Íslandsmótinu á Selfossi í ár munu fá slíkan hring og geta borið með stolti til minnis um einstakan árangur og hápunkt á sínum ferli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link