Íslenskur pallur í tölti ungmenna
Áfram rúllar úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum sem er að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV.
Næst síðustu úrslit dagsins voru tölt T1 í ungmennaflokki. Þar átti Ísland fjóra glæsilega fulltrúa sem röðuð sér í fjögur efstu sætinn. Jón Ársæll Bergmann og Viskusteinn frá Íbishóli tryggðu sér sinn annan Norðurlandameistarartitil þegar þeir unnu töltið með 8,06 í einkunn
Hekla Rán Hannesdóttir og Tindur frá Árdal enduðu í öðru sæti með 7,50 í einkunn og í því þriðja varð Eva Kærnested og Logi frá Lerkiholti með 7,39 í einkunn. Elva Rún Jónsdóttir og Kvasir frá Steinnesi voru svo í fjórða sæti með 7,17 í einkunn.
Niðurstöður úr A úrslitum í tölti T1 í ungmennaflokki
| Sæti | Knapi | Hross | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Jón Ársæll Bergmann | Viskusteinn frá Íbishóli | Island | 8,06 |
| 2 | Hekla Rán Hannesdóttir | Tindur frá Árdal | Island | 7,50 |
| 3 | Eva Kærnested | Logi frá Lerkiholti | Island | 7,39 |
| 4 | Elva Rún Jónsdóttir | Kvasir frá Steinnesi | Island | 7,17 |
| 5 | Óskar Erik Kristjánsson | Kjarkur frá Vorsabæ II | Danmark | 7,00 |
| 6 | Lára Gardarsdottir Hesselman | Álfur från Knutshyttan | Gyda Islandshäst Förening | 6,67 |
Íslenskur pallur í tölti ungmenna