Ísmót Hrings 13.febrúar – tölt og skeið

  • 9. febrúar 2010
  • Fréttir

Mynd: www.hringurdalvik.net

Ísmót Hrings 13.febrúar - tölt og skeið

Samkvæmt mótaskrá Hrings er fyrirhugað að halda Ísmót um komamdi helgi. Vötn og ár eru ísilagðar og því kjör aðstæður til mótahalds. Í ár er áætað að mótið fari fram á Hrísatjörn, rétt sunnan Dalvíkur. Nánari upplýsingar varðandi mótið verða gefnar út á næstu dögum.

Keppt verður í Tölti opnum flokki.

Skeið: 100m fljúgandi start (handtímataka)

Keppnisstaður: Hrísatjörn.

Keppni hefst kl 14:00, laugardaginn 13.febrúar.

Skráningargjald er kr. 2000 á fyrstu skráningu 1500 á aðra skráningu. Skráningargjald skal greiða á reikning  félagsins: kt. 540890-1029 reknnr: 1177-26-175 – skýring nafn knapa. Kvittun sendist á [email protected] (einnig getur verið gott fyrir knapa að prenta út kvittun, ef póstur skilar sér ekki)

Skráning fer fram í gegnum heimasíðu félagsins – „Um félagið“ – „skráning í mót“ eða hjá Bjarna í síma 8622242 fyrir fimmtudaginn 11.feb. kl 20:00

Nánari upplýsingar um mótið verða uppfærðar á heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net .

Mótanefnd Hrings

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link