Ísmót Hrings frestað
Vegna óhagstæðra aðstæðna á Hrísatjörn hefur verið ákveðið að fresta Ísmóti Hrings sem fyrirhugað var að halda í dag. Nýjar upplýsingar um mótið verða uppfærðar á heimasíðunni í vikunni. Hugsanlegt er að mótið verði haldið einhvern seinnipartinn í vikunni.
Starfsmenn Ísmóts Hrings könnuðu aðstæður á Hrísatjörn í gær, og höfðu þá aðstæður breyst mikið á skömmum tíma.
Keppendur, starfsmenn og áhorfendur eru beðnir um að fylgjast með á heimasíðu Hrings á morgun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH