Ísmót Hrings, sunnudaginn 20.febrúar
Fyrirhugað er að halda ísmót Hrings sem frestað var um síðustu helgi. Mótið verður haldið á sunnudaginn 20. febrúar og hefst kl 14.00 á Hrísatjörn…
Knapar sem skráðir voru í mótið um síðustu helgi eru beðnir um að láta vita ef breyta á skráningu á email –[email protected] . Einnig er opið fyrir nýjar skráningar til kl. 20:00 annað kvöld laugardag 19.feb.
Keppt verður í Tölti og 100m skeiði báðir flokkar opnir.
Skráningu skal lokið fyrir laugardag 19.febrúar kl 20:00 á heimasíðunni. Veljið flipann „skráning“ í mót hér hægrameginn í neðst í valstikunni.
Skráningargjald er kr. 2000 á fyrstu skráningu 1500 á aðra skráningu per knapa. Skráningargjald skal greiða á reikning félagsins: kt. 540890-1029 reknnr: 1177-26-175 – skýring nafn knapa. Kvittun sendist á [email protected] (einnig getur verið gott fyrir knapa að prenta út kvittun, ef póstur skilar sér ekki)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH