Ísmót Hrings
Laugardaginn 14. febrúar blæs Hestamannafélagið Hringur til Ísmóts á Hrísatjörn. Keppt verður í tölti, opnum flokki og 100m skeiði. Skráning skal fara fram á hringurdalvik.net í gegnum skráningarformið undir tenglinum „Skráning í mót“ til vinstri á síðunni fyrir kl. 20 fimmtudaginn 12. febrúar. Skráningargjald er 2000 kr. á fyrstu skráningu og 1500 kr. á skráningu eftir það.
Skráningargjald þarf að leggja inná reikning hestamannafélagsins kt. 540890-1029, reikn: 1177-26-175 tilvísun ísmót kvittun sendist á [email protected] .
Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist.
Mótið hefst kl 11:00 og skulu knapar vera mættir 10:30
Upplýsingar um mótið veitir Þórir Áskelsson í síma 699-2099 eða á netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH