Ísmót Rauðavatni – breytt tímasetning
Breyting er á tímasetningu á Ísmótinu á Rauðavatni. Mótið hefst klukkan 11 stundvíslega á tölti áhugamanna. Ástæðan fyrir þessari breytingu er að Meistaradeild VÍS hefst klukkan 19 á laugardagskvöldið.
Skráningarfrestur til miðnættis í kvöld
Tekið við skráningum í síma 696 2904 og opið verður fyrir skráningu í e-mailinu [email protected]. Setjið nafn, kennitölu og Ísmót Rauðavatn í skýringu
Vegna mikillar fyrirspurnar hefur einum flokki verið bætt við:
- Tölt áhugamanna
- tölt 18 ára og yngri
- tölt opinn flokkur
- A flokkur
- B flokkur
Verðlaun í tölti 18 ára og yngri verða gjafabréf frá heildversluninni Kleifarás, 1. sæti fær 15 þús, 2. sæti 10 þús og 3. sæti 5 þús.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH