Ísmót á Stakhólstjörn

  • 11. mars 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Mývatn Open verður haldið 13. - 14. mars.

Framlengdur skráningarfrestur á Mývatn Open.

Ísmót hestamannafélagsins Þjálfa og Sel-Hótel Mývatns verður haldið helgina 13.-14. mars 2015 á Stakhólstjörn við Skútustaði.

„Boðið verður í reiðtúr á ísilögðu Mývatni föstudaginn 13. mars þar sem allir eru hjartanlega velkomnir (ekkert þátttökugjald).

Að þessu sinni verður keppt í þremur keppnisgreinum, tölti, A- og B-flokki. Í hverri grein eru tveir styrkleikaflokkar, 1. og 2. flokkur. Forkeppni beggja flokka verður riðin sameiginlega, en sérstök úrslit verða fyrir hvorn flokk.

Dagskrá:

Föstudagurinn 13. mars:

Hópreið á ísilögðu Mývatni. Brottför frá flötinni neðan við Álftagerði (Álftabáru) kl. 16:30. Reiðtúrinn tekur u.þ.b. 2 klst. Sel-Hótel Mývatn býður knöpum upp á samlokur og heitt kakó úti í eyju.

Laugardagur 14. mars:

kl. 10:00

B-flokkur, forkeppni og úrslit (2. og 1. flokkur)

Hádegishlé

A-flokkur, forkeppni og úrslit (2. og 1. flokkur)

Tölt, forkeppni og úrslit (2. og 1. flokkur)

Verðlaunaafhending yfir kaffihlaðborði í Selinu.

kl. 19:30

Húsið opnar fyrir stemmingu kvöldsins. Videosýning frá afrekum dagsins á beiðtjaldi.

kl. 20:30

Veisluhlaðborð hefst.

Framlengdur skráningarfrestur! Skráningar berist á netfangið [email protected] fyrir miðnætti miðvikudaginn 11. mars. Eftirtalið þarf að koma fram: keppnisgrein, styrkleikaflokkur, nafn knapa, nafn hests, litur, aldur, faðir og móðir.

Þeir sem ekki geta sent skráningu sína með tölvupósti geta haft samband við Erling í síma: 461-4762.

Skráningargjald er 3000 kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 1110-26-138, kt. 480792-2549. Komið með kvittun eða sendið á netfangið [email protected] þar sem tekið er fram fyrir hvaða hest og knapa er verið að greiða. Ekki verður posi á staðnum.

Bókanir í gistingu og mat hjá Sel-Hótel Mývatn í síma 464-4164 eða [email protected].

Þeim gestum og keppendum sem vantar hesthúspláss er bent á að hafa samband við Marínó í síma 896-0593 eða á netfangið [email protected],“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link