Ísold frá Gunnarsholti heiðruð-
Ein af þeim átta stólpahryssum sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár er Ísold frá Gunnarsholti, flaggskipið í ræktun Berglinda Ágústsdóttur og Ragnars Sölva Geirssonar á Efra-Langholti.
Ísold er fædd Landgræðslu Ríkisins í Gunnarsholti 1990 en Berglind keypti hana þriggja vetra gamla. Hún er undan Brenni frá Kirkjubæ og Djörfung frá Gunnarsholti. Hún var sýnd í kynbótadómi árið 1996 og fékk þá 8,19 í aðaleinkunn, fyrir sköpulag 7,86 og 8,53 fyrir kosti. Aðaleinkunn kynbótamats Ísoldar er nú 116. Árið 2008 skrifaði Jens Einarsson þessa fróðlegu grein um Ísold í kjölfar hins góða árangurs fyrsta afkvæmisins, Garra.
Ísold hefur nú eignast 11 afkvæmi, fimm af þeim hafa fengið dóm og fjögur þeirra fyrstu verðlaun.
Fyrsta afkvæmið hennar er, eins og áður sagði, kynbótatröllið Garri Orrason frá Reykjavík sem hlaut 8,77 í aðaleinkunn kynbótadóms. Hann trjónir á toppi afkvæmahesta með 128 í aðaleinkunn kynbótamats, af 318 skráðum afkvæmum hans, hafa 43 þeirra komið til dóms og 26 þeirra hlotið 1. verðlaun. (Hæst dæmdu afkvæmin nú eru Viktor frá Diisa (8,63), Tenór frá Túnsbergi (8,61) og Hvinur frá Vorsabæ 1 (8,47).
Þrjár dætur Ísoldar, þær Venus, Dögun og Íris, eru nú hluti af myndarlegum ræktunarhryssuhópi á Efra-Langholti.
Í vor verður hins vegar spennandi að fylgjast með tveimur ungum vonarstjörnum frá Ísold. Stáladóttirin Ísbjörg er núna í frumtamningu og er að sögn Berglindar þæg og töltgeng. Einnig er myndarlegur foli á 5. vetri, að nafni Leiftur í þjálfun og verður vonandi sýndur í vor.
Í sumar fæddist svo forkunnafagur rauðblesóttur hestur undan Mjölni frá Hlemmiskeiði.
- Garri frá Reykjavík Orri frá Þúfu 8.35 – 9.05 – 8.77
- Venusfrá Reykjavík Andvari frá Ey I 8.29 – 8.35 – 8.33
- Ísak frá Efra-Langholti Hugi frá Hafsteinsstöðum 7.85 – 8.31 – 8.13
- Mirra frá Efra-Langholti Randver frá Nýjabæ
- Dögun frá Efra-Langholti Rökkvi frá Hárlaugsstöðum
- Íris frá Efra-Langholti Orri frá Þúfu 8.02 – 8.24 – 8.15
- Ísadór frá Efra-Langholti Þóroddur frá Þóroddsstöðum 8.16 – 7.5 – 7.77
- Leiftur frá Efra-Langholti Aron frá Strandarhöfði
- Ísbjörg frá Efra-Langholti Stáli frá Kjarri
- Ímynd frá Efra-Langholti Krákur frá Blesastöðum 1A
- Ísar frá Efra-Langholti Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3
Eigendur þeirra átta hryssa sem hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár munu veita verðlaununum viðtökur á ráðstefnunni Hrossarækt 2011 sem fram fer laugardaginn 19. nóvember nk.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af afkvæmum Ísoldar frá Gunnarsholti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH