Ísólfur og Flans sigurvegarar kvöldsins
Ísólfur Líndal Þórisson stóð uppi sem sigurvegari á gríðarsterku Stjörnutölti, sem fram fór í Léttishöllinni á Akureyri í gærkvöldi.Ísólfur tefldi fram reynslubolta á keppnisbrautinni, Flans frá Víðivöllum fremri.
Silfrið fékk Finnbogi Bjarnason á Roða frá Garði, eftir að hafa sigrað B-úrslit. Þriðji varð svo Bjarni Jónasson á Dyn frá Dalsmynni.
Nokkrir af albestu tölturum og gæðingum landsins voru mættir til leiks á Stjörnutöltið, sem var þekkt sem stærsta íshallarmót innanhús norðan heiða. Mótshaldarar ákváðu hins vegar að færa mótið í Léttishöllina og reyndist keppnin ekki síðri þrátt fyrir það.
A úrslit:
1 Ísólfur Líndal Þórisson / Flans frá Víðivöllum fremri 7,94
2 Finnbogi Bjarnason / Roði frá Garði 7,72
3 Bjarni Jónasson / Dynur frá Dalsmynni 7,61
4 Guðmundur Karl Tryggvason / Rósalín frá Efri-Rauðalæk 7,50
5 Tryggvi Björnsson / Hlynur frá Haukatungu Syðri 7,33
B úrslit:
Í A úrslit – Finnbogi Bjarnason / Roði frá Garði 7,28
6 Vigdís Gunnarsdóttir / Sögn frá Lækjamóti 7,00
7 Skapti Steinbjörnsson / Oddi frá Hafsteinsstöðum 6,94
8 Stefán Birgir Stefánsson / Aldís frá Krossum I 6,72
9 Magnús Bragi Magnússon / Gola frá Krossanesi 6,50
10 Líney María Hjálmarsdóttir / Stormur frá Draflastöðum 6,28
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH