Ístölt mót Gnýfara

  • 24. janúar 2012
  • Fréttir
Ístölt mót Gnýfara

Ístölt mót hestamannafélagsins Gnýfara verður haldið laugardaginn 11. febrúar á  Ólafsfjarðarvatni. Keppt verður í tölti og 100 metra skeið.  

„Peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í tölti og skeiði og ekkert skráningargjald. Hægt er að skrá sig á netfangið [email protected] og [email protected], fram þarf að koma nafn, aldur, faðir og móðir, upplýsingar um mótið eru veittar í síma 8670251,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd félagsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link