Íþróttaknapi ársins

  • 30. október 2021
  • Fréttir
Jakob Svavar Sigurðsson

Íþróttaknapi ársins 2021 er Jakob Svavar Sigurðsson en valið var kynngjört rétt í þessu á verðlaunahátíð Landsambandsins sem haldin er á Hotel Natura. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:

„Jakob Svavar Sigurðsson, var í úrslitum á flestum þeim mótum sem hann tók þátt í á árinu og nældi sér oft í sigur. Hann varð tvöfaldur Íslandsmeistari á árinu í slaktaumatölti á Kopari frá Fákshólum og samanlagður fjórgangssigurvegari á Hálfmána frá Steinsholti en hann var í úrslitum bæði í tölti og fjórgangi á honum á Íslandsmótinu. Þeir Hálfmáni eru efstir á stöðulista ársins í fjórgangi og bættu svo rós í hnappagatið þegar þeir stóðu efstir í töltkeppni Fjórðungsmótsins í Borgarnesi. Jakob Svavar er öðrum knöpum fyrirmynd og mætir alltaf vel undirbúinn til leiks, hann er íþróttaknapi ársins.“

Eiðfaxi óskar Jakobi innilega til hamingju með árangur ársins!

 

 

Aðrir tilnefndir:

  • Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
  • Árni Björn Pálsson
  • Eyrún Ýr Pálsdóttir
  • Jóhanna Margrét Snorradóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link