íþróttamaður ársins

  • 29. desember 2013
  • Fréttir
Hestmaður í 11.sæti

Val á Íþróttamanni ársins 2013 var tilkynnt í gær en það var fótboltamaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson sem varð fyrir valinu þetta árið. 

Enginn hestamaður var tilnefndur þetta árið eins og svo oft áður. Einn hestamaður hlotið þennan titil en það var Gullbjörninn, Sigurbjörn Bárðarson. Búið er að gefa út listann yfir þá íþróttamenn sem þóttu standa sig best á árinu og hægt er að sjá að Heimsmeistarinn Jóhann R. Skúlason er í ellefta sæti með 23 stig.

Íþróttamaður ársins:
 
1. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna – 446 stig
2. Aníta Hinriksdóttir, frjálsar – 288 stig
3. Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti – 236 stig
4. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti – 206 stig
5. Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrna – 189 stig
6. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna – 134 stig
7. Alfreð Finnbogason, knattspyrna – 73 stig
8. Helgi Sveinsson, íþr. fatlaðra – 62 stig
9. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar – 41 stig
10. Aron Pálmarsson, handbolti – 32 stig
 
11. Jóhann Rúnar Skúlason, hestaíþróttir – 23 stig
12. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund – 16 stig
13. Norma Dögg Róbertsdóttir, fimleikar – 15 stig
14. Birgir Leifur Hafþórsson, golf – 15 stig
15. Guðbjörg Gunnarsdóttir, knattspyrna – 14 stig
16. Guðmundur Sverrisson, frjálsar – 11 stig
17. Helena Sverrisdóttir, körfubolti – 7 stig
18. Dominiqua Alma Belanyi, fimleikar – 4 stig
19. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund – 4 stig
20. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna – 3 stig
21. Þóra Björg Helgadóttir, knattspyrna – 3 stig
22. Valdís Þóra Jónsdóttir, golf – 2 stig
23. Þórir Ólafsson, handbolti – 1 stig 

Lið ársins:
 
1. A-landslið karla, knattspyrna – 125 stig
2. A-landslið kvenna, knattspyrna – 55 stig
3. Kvennalið Gerplu, hópfimleikar – 20 stig 

Þjálfari ársins:
 
1. Alfreð Gíslason, handbolti – 54 stig
2. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, knattspyrna – 34 stig
3. Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsar – 33 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link