Íþróttamót Dreyra
Það er komið að lokamótinu hjá Dreyra sem er opið Íþróttamót og verður haldið helgina 27.-29.ágúst 2021.
Keppt verður í Meistaraflokk (Tölt T1, Tölt T2, Fjórgangur V1 og Fimmgangur F1), 1. og 2. Flokkur ( Tölt T3, Tölt T7, Tölt T4, Fjórgangur V2 og Fimmgangur F2). Barnaflokkur (Tölt T7 og Fjórgangur V5), unglingaflokkur (Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Tölt T3 og Tölt T4) og ungmennaflokkur (Tölt T3, T4 Fjórgangur V2 og Fimmgangur F2).
Skráning fer fram í sportfeng og byrja 17. og lýkur 24.ágúst kl. 23:00. Skráningargjald er 5.000 kr á ungmenna og fullorðinsflokki en 2000 kr á börn og unglingaflokk.
P.s. Mótanefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki fæst næg þátttaka.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH