Íþróttamót Smára og Loga

  • 2. júní 2013
  • Fréttir
Íþróttamót Smára og Loga

„Íþróttamót Smára og Loga ásamt sameiginlegu töltmóti Smára, Loga og Trausta verður haldið í Hrísholti þann 8.júní næstkomandi. 

Boðið verður uppá eftirfarandi greinar:

Tölt: 1.flokkur, 2.flokkur, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkur.
Fjórgangur: 1.flokkur, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkur.
Fimmgangur: 1.flokkur, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkur.
100m. flugskeið: 1.flokkur og 17 ára og yngri.

Skráningargjöld eru 3.000 kr fyrsta skráning og 2.000 kr eftir það í öllum flokkum nema barnaflokki þar sem fyrsta skráning er 2.000 kr og 1.500 kr næsta. Skráningargjöld greiðast með peningum við fótaskoðun. ATH ekki posi. (Séu skráningargjöld ekki greidd fær viðkomandi ekki að vera með.) Skráningu lýkur á miðnætti 3.júní á netföngin [email protected] og [email protected]. Í skráningu þarf að koma fram nafn og kennitala keppanda, IS númer og nafn hests, í hvaða flokki og greinar er skráð og upp á hvora höndina skal riðið. 

Nánari fyrirkomulag og dagskrá verða auglýst síðar.“ kemur fram í fréttatilkynningu frá Smára.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link