Íþróttamót Sörla
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á opna íþróttamót Sörla sem haldið verður næstu helgi 16.- 18. maí á Sörlastöðum.
Skráning er til miðnættis í kvöld þriðjudaginn 13. maí.
Skráningargjöld eru 3.500kr. í öllum flokkum nema í pollaflokk (1.000kr.) og skeiðgreinum ( 250m, 150m, og 100m ) 2.500kr.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og greinar:
- Meistaraflokkur: Fjórgangur V1-Tölt T1-Tölt T2-Fimmgangur F1 -Gæðingaskeið
- 1.flokkur (keppnisvanir): Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
- 2.flokkur (minna keppnisvanir): Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Tölt T7-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
- Ungmennaflokkur (18 – 21 á árinu): Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Tölt T7-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
- Unglingaflokkur (14 – 17 ár árinu): Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T4-Tölt T7-Fimmgangur F2-Gæðingaskeið
- Barnaflokkur (10 – 13 ára á árinu, ekki má skrá yngri keppendur í barnaflokk): Fjórgangur V2-Tölt T3-Tölt T7
- Pollaflokkar (yngri en 10 ára): Ríðandi og teymdir (þátttökuverðlaun, ekki raðað í sæti)
- 100m skeið – 150m skeið – 250m skeið
- Fimi A
Skráning er hafin á eftirfarandi vefslóð: Sportfengur
Athugið Í skráningakerfi Sportfengs er:
- T4 er skráð sem T2
- Pollar skráðir í Annað
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka. Nánari dagskrá verður auglýst þegar skráning liggur fyrir.
Fyrirspurnum til mótanefndar má koma til skila á netfangið [email protected]
Leiðbeiningar með skráningu:
Velja skráningu í efstu línu – svo mót í næstu línu – velja Sörla sem mótshaldara og fylla svo inní stjörnumerkta reiti. Neðst er hægt að velja um atburð og þá er valið Opið íþróttamót. Þá birtast þær greinar sem í boði eru á mótinu. Keppandi velur sér grein og uppá hvora hönd skal riðið. Þegar keppandi hefur valið það sem við á og fyllt út alla stjörnumerkta reiti er pöntunin sett í körfu sem er hnappur neðst á síðunni. Hægt er að bæta við fleiri skráningum og setja í körfuna. Þegar keppandi er búinn að skrá þá er farið í vörukörfuna efst í hægra horninu og gengið frá greiðslu þar, hægt er að velja um kortagreiðslu eða millifærslu.
ATHUGIÐ: ef greitt er með millifærslu þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á m[email protected]. Ef greiðsla hefur ekki borist,er keppandi ekki skráður á mótið.
Mótanefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH