Íþróttasjóður

  • 18. september 2013
  • Fréttir
Umsóknarfrestur til 1. október

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is Umsóknum skal skila á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, [email protected], sími 515-5833.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link