Jafnar í efsta sæti – úrslit ungmennaflokks
Eftir geysilega harða baráttu urðuGeysiskonurnar Rakel Natalie Kristinsdóttir á Vígar frá Skarði og Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir á Glímu frá Bakkakoti jafnar, hlutu báðar í lokaeinkunn 8,85. En dómarar völdu sigurvegara með kosningu og fór svo að Rakel Natalie hlaut fyrsta sætið. Þriðji var svo sigurvegari B-úrslita, Jón Bjarni Smárason á Háfeta frá Úlfsstöðum, hlutu þeir 8,73 í einkunn.
1 Rakel Natalie Kristinsdóttir / Vígar frá Skarði 8,85
2 Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir / Glíma frá Bakkakoti 8,85
3 Jón Bjarni Smárason / Háfeti frá Úlfsstöðum 8,73
4 Ásta Kara Sveinsdóttir / Hróarskelda frá Hafsteinsstöðum 8,69
5 Agnes Hekla Árnadóttir / Vignir frá Selfossi 8,62
6 Hekla Katharína Kristinsdóttir / Gautrekur frá Torfastöðum 8,61
7 Teitur Árnason / Borði frá Fellskoti 8,56
8 Arnar Bjarki Sigurðarson / Röskur frá Sunnuhvoli 8,55
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH