Jakob og Arnar Máni leiða slaktaumatöltið
Þá er orðið ljóst hverjir ríða til úrslita í slaktaumatölti um helgina. Frábærar sýningar voru hér á Rangárbökkum í dag og eru það þeir Arnar Máni Sigurjónsson og Arion frá Miklaholti með einkunnina 7.27 sem leiða í ungmennaflokki. Védís Huld Sigurðardóttir er önnur eftir forkeppni á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum með 7,13 í einkunn og þriðja er Katla Sif Snorradóttir á Eldeyju frá Hafnarfirði með 7,10 í einkunn.
Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum leiða nokkuð örugglega meistaraflokkinn með einkunnina 8.63 í einkunn. Annar er Viðar Ingólfsson á Eldi frá Mið-Fossum með 7,93 í einkunn og þriðji Teitur Árnason á Nirði frá Feti með 7,90 í einkunn.
Meistaraflokkur – Forkeppni
1 Jakob Svavar Sigurðsson / Kopar frá Fákshólum 8,63
2 Viðar Ingólfsson / Eldur frá Mið-Fossum 7,93
3 Teitur Árnason / Njörður frá Feti 7,90
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Flóvent frá Breiðstöðum 7,70
5 Sigurður Vignir Matthíasson / Dýri frá Hrafnkelsstöðum 1 7,67
6 Jóhann Kristinn Ragnarsson / Kvarði frá Pulu 7,50
7-8 Sigurður Vignir Matthíasson / Dímon frá Laugarbökkum 7,43
7-8 Ólöf Helga Hilmarsdóttir / Katla frá Mörk 7,43
9 Reynir Örn Pálmason / Týr frá Jarðbrú 7,40
10 Ásmundur Ernir Snorrason / Hlökk frá Strandarhöfði 7,30
11 Sigrún Rós Helgadóttir / Hjari frá Hofi á Höfðaströnd 7,13
12 Matthías Leó Matthíasson / Kolka frá Leirubakka 7,10
13 Finnbogi Bjarnason / Leikur frá Sauðárkróki 7,07
14-15 Ólöf Rún Guðmundsdóttir / Skál frá Skör 6,90
14-15 Guðmar Þór Pétursson / Vildís frá Múla 6,90
16 Vilfríður Sæþórsdóttir / List frá Múla 6,83
17 Hans Þór Hilmarsson / Tónn frá Hjarðartúni 6,70
18 Eyrún Ýr Pálsdóttir / Doðrantur frá Vakurstöðum 6,60
19 Rakel Sigurhansdóttir / Slæða frá Traðarholti 6,50
20 Tinna Rut Jónsdóttir / Fönix frá Silfurbergi 6,47
21 Rakel Sigurhansdóttir / Blakkur frá Traðarholti 6,23
22 Hjörvar Ágústsson / Fróði frá Brautarholti 6,03
23 Hjörvar Ágústsson / Úlfur frá Kirkjubæ 5,57
24 Ólafur Andri Guðmundsson / Askja frá Garðabæ 0,00
Ungmennaflokkur – Forkeppni
1 Arnar Máni Sigurjónsson / Arion frá Miklholti 7,27
2 Védís Huld Sigurðardóttir / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 7,13
3 Katla Sif Snorradóttir / Eldey frá Hafnarfirði 7,10
4 Sigurður Baldur Ríkharðsson / Auðdís frá Traðarlandi 6,97
5 Kristófer Darri Sigurðsson / Ófeigur frá Þingnesi 6,93
6 Egill Már Þórsson / Hryggur frá Hryggstekk 6,80
7 Anna María Bjarnadóttir / Birkir frá Fjalli 6,77
8 Signý Sól Snorradóttir / Rafn frá Melabergi 6,67
9-10 Glódís Rún Sigurðardóttir / Breki frá Austurási 6,57
9-10 Védís Huld Sigurðardóttir / Víkingur frá Árgerði 6,57
11 Ólöf Bára Birgisdóttir / Gnýfari frá Ríp 6,47
12-13 Benedikt Ólafsson / Bikar frá Ólafshaga 6,27
12-13 Kristófer Darri Sigurðsson / Ás frá Kirkjubæ 6,27
14 Arnar Máni Sigurjónsson / Ólína frá Hólsbakka 6,00
15 Þorvaldur Logi Einarsson / Skálmöld frá Miðfelli 2 5,93
16 Sigurður Baldur Ríkharðsson / Þengill frá Ytra-Dalsgerði 5,73
17-18 Þórey Þula Helgadóttir / Sólon frá Völlum 5,70
17-18 Embla Þórey Elvarsdóttir / Kolvin frá Langholtsparti 5,70
19 Kristján Árni Birgisson / Glámur frá Hafnarfirði 5,67
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH