Jakob og Katla Sif Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum
Jakob Svavar Sigurðsson og Katla Sif Snorradóttir eru samanlagði sigurvegari í fimmgangsgreinum, Jakob í meistaraflokki og Katla í ungmennaflokki.
Jakob sat Nökkva frá Hrísakoti en þeir hlutu í tölti 7,57, fimmgangi 7,47 og í gæðingaskeiði 7,75.
Katla sat Gimstein frá Víðinesi 1 og hlutu þau í tölti 6,43, fimmgangi 6,83 og í gæðingaskeiði 4,46.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH