Jakob sigraði verðskuldað
Keppt var í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS í kvöld. Gæðingafimin er öðruvísi keppnisgrein og reynir gríðarlega á reiðmennsku knapanna og ganghæfileika og þjálfunarstig hestanna sem þeir mæta með.
Hver knapi fékk fjórar mínútur til að sýna það sem í hestinum hans býr. Hann hefur nokkuð frjálsar hendur með útfærslu atriðis síns og reynir að sýna fjölhæfni og hátt erfiðleikastig þeirra æfinga sem hann sýnir á hesti sínum. Parið er svo dæmt af sex dómurum, þrír dæma gangtegundir flæði sýningar og þrír dæma æfingar og fjölhæfni. Nokkrar sýningar báru af og komust þeir tíu efstu í aðra umferð.
Þar skal fyrst nefna sýningu Jakobs Svavars Sigurðssonar á Auð frá Lundum II. Báðar sýningar þeirra tókust gríðarvel, þó sú síðari hafi jafnvel verið enn tilkomumeiri. Hesturinn var mjúkur í skrokknum, samvinnufús og knapinn náði virkilega að sýna allar hans bestu hliðar. Gangtegundir voru öruggar, sýndar bæði á hægri og hraðri ferð. Æfingarnar voru fjölhæfar og gerðar af nákvæmni og þjálni en krefjandi í senn.
Í öðru sæti var Valdimar Bergstað með Leikni frá Vakurstöðum. Valdimar var í 3.-4.sæti eftir forkeppnina en átti frábæra seinni sýningu sem fleytti honum upp í annað sætið upp að hlið Jakobs. Leiknir var mjög góður, mjúkur, öruggur og þjáll. Helsti munurinn á þessum tveimur hestum var kannski sá að fjölhæfni í æfingum var meiri hjá Jakobi. Báðir þessir hestar voru hin besta skemmtun á að horfa.
Þriðji varð Sigurður Sigurðarson á Suðra frá Holtsmúla. Siggi var annar eftir forkeppnina en missti það sæti til Valdimars í seinni umferðinni. Suðri var góður og alltaf gaman að horfa á hans eðalgangtegund, brokkið. Það er í senn svifmikið, skrefmikið og fjaðrandi. Það sem vantaði þó upp á, var að sjá hestinn í betri höfuðburði á brokkinu og meiri fágun yfir sýningunni í heild sinni. Einnig vantaði upp á mýktina til þess að sýningin öll heillaði mann. En Suðri er sýningartýpa og hrífur mann alltaf á sinn hátt.
Sýningar meistaraknapanna voru ansi misjafnar. Þeir sem urðu í efstu sætunum voru þar verðskuldað. Hins vegar fannst manni á sýningum sumra knapanna, að þeir hafi lagt takmarkaðan tíma í að æfa prógramm fyrir þessa keppni og/eða hestarnir sem þeir voru á réðu einfaldlega ekki við krefjandi verkefnið.
Úrslit gæðingafiminnar:
Nr Knapi Lið Hestur Einkunn
- Jakob S Sigurðsson Skúfslækur Auður frá Lundum 8,25
- Valdimar Bergstað Málning Leiknir frá Vakurstöðum 7,63
- Sigurður Sigurðarson Skúfslækur Suðri frá Holtsmúla 7,45
- Viðar Ingólfsson Frumherji Spaði frá Hafrafellstungu 7,24
- Ísleifur Jónasson Lýsi Röðull frá Kálfholti 7,13
- Sigurbjörn Bárðarson Lífland Stakkur frá Halldórsstöðum 7,07
- Hinrik Bragason Hestvit Náttar frá Þorláksstöðum 6,92
- Hulda Gústafsdóttir Hestvit Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 6,86
- Halldór Guðjónsson Lýsi Höfði frá Snjallsteinshöfða 6,85
- Daníel Jónsson Top Reiter Tónn frá Ólafsbergi 6,58
Niðurstöður úr forkeppni:
Nr Knapi Lið Hestur Einkunn
- Jakob S Sigurðsson Skúfslækur Auður frá Lundum 7,92
- Sigurður Sigurðarson Skúfslækur Suðri frá Holtsmúla 7,8
- Valdimar Bergstað Málning Leiknir frá Vakurstöðum 7,35
- Sigurbjörn Bárðarson Lífland Stakkur frá Halldórsstöðum 7,35
- Hinrik Bragason Hestvit Náttar frá Þorláksstöðum 7,06
- Viðar Ingólfsson Frumherji Spaði frá Hafrafellstungu 6,84
- Ísleifur Jónasson Lýsi Röðull frá Kálfholti 6,84
- Halldór Guðjónsson Lýsi Höfði frá Snjallsteinshöfða 6,83
- Hulda Gústafsdóttir Hestvit Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 6,82
- Daníel Jónsson Top Reiter Tónn frá Ólafsbergi 6,72
- Bylgja Gauksdóttir Lífland Grýta frá Garðabæ 6,66
- Eyjólfur Þorsteinsson Málning Klerkur frá Bjarnanesi 6,66
- Sigursteinn Sumarliðason Frumherji Falur frá Þingeyrum 6,27
- Daníel Ingi Smárason Lýsi Vili frá Engihlíð 6,13
- Ragnar Tómasson Top Reiter Brimill frá Þúfu 5,75
- Camilla P Sigurðardóttir Skúfslækur Hylling frá Flekkudal 5,74
- Ólafur Ásgeirsson Frumherji Sædynur frá Múla 5,69
- Sigurður V Matthíasson Málning Hlynur frá Oddhól 5,59
- Guðmundur Björgvinsson Top Reiter Þytur frá Neðra-Seli 5,55
- Jóhann G. Jóhannesson Hestvit Saga frá Lynghaga 5,31
- Agnar Þór Magnússon Lífland Frægur frá Flekkudal 5,17
Einstaklingskeppnin:
nr Nafn Lið Stig
1 Eyjólfur Þorsteinsson Málning 29
2 Sigurður Sigurðarson Skúfslækur 27
3 Hinrik Bragason Hestvit 22
3 Jakob Sigurðsson Skúfslækur 22
5 Sigurbjörn Bárðarson Lífland 20
6 Ísleifur Jónasson Lýsi 17
6 Viðar Ingólfsson Frumherji 17
8 Sigurður Vignir Matthíasson Málning 13
8 Valdimar Bergstað Málning 13
10 Hulda Gústafsdóttir Hestvit 11
11 Bylgja Gauksdóttir Lífland 9
12 Daníel Ingi Smárason Lýsi 7
12 Daníel Jónsson Top Reiter 7
14 Ólafur Ásgeirsson Frumherji 5
14 Halldór Guðjónsson Lýsi 5
16 Camilla Petra Sigurðardóttir Skúfslækur 4
17 Ragnar Tómasson Top Reiter 2
18 Agnar Þór Magnússon Lífland 2
Liðakeppnin:
Lið Stig
Málning 168
Skúfslækur 156
Lífland 138
Lýsi 129,5
Hestvit 125
Frumherji 113,5
Top Reiter 94
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH