Jakob Svavar hóf titilvörnina á sigri!
Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti leiddu að lokinni forkeppni og stóðu uppi sem sigurvegarar að úrslitum loknum. Matthías Leó Matthíasson, sem fór kaupum og sölum milli liða nú rétt fyrir mót, stóð sig vel og hlaut silfur á Takti frá Vakurstöðum. Elín Holst varð þriðja á Frama frá Ketilsstöðum.
Liðaplattanum deildu liðin Eques / Kingsland og Hjarðartún en þau voru jöfn að stigum með 46 stig en í þriðja sæti er lið Hestvits/Árbakka. Næsta keppni fer fram fimmtudaginn 13.febrúar en þá verður keppt í slaktaumatölti í TM höllinni í Fáki.
Hér fyrir neðan má sjá úrslit kvöldsins!
| Fjórgangur V1 | eiðfaxi | ||
| Opinn flokkur – Meistaraflokkur | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jakob Svavar Sigurðsson | Hálfmáni frá Steinsholti | 7,33 |
| 2-3 | Hulda Gústafsdóttir | Sesar frá Lönguskák | 7,17 |
| 2-3 | Árni Björn Pálsson | Hátíð frá Hemlu II | 7,17 |
| 4 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Grímur frá Skógarási | 7,07 |
| 5 | Elin Holst | Frami frá Ketilsstöðum | 7,00 |
| 6-7 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | 6,97 |
| 6-7 | Matthías Leó Matthíasson | Taktur frá Vakurstöðum | 6,97 |
| 8-9 | Ragnhildur Haraldsdóttir | Vákur frá Vatnsenda | 6,93 |
| 8-9 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Glymjandi frá Íbishóli | 6,93 |
| 10-11 | Helga Una Björnsdóttir | Hnokki frá Eylandi | 6,90 |
| 10-11 | Flosi Ólafsson | Frami frá Ferjukoti | 6,90 |
| 12 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Askur frá Gillastöðum | 6,87 |
| 13 | Ásmundur Ernir Snorrason | Dökkvi frá Strandarhöfði | 6,80 |
| 14 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | 6,73 |
| 15 | Sigurður Sigurðarson | Rauðka frá Ketilsstöðum | 6,70 |
| 16 | Siguroddur Pétursson | Steggur frá Hrísdal | 6,67 |
| 17-18 | Þórarinn Ragnarsson | Leikur frá Vesturkoti | 6,63 |
| 17-18 | Bergur Jónsson | Álfgrímur frá Syðri-Gegnishólum | 6,63 |
| 19-21 | Telma Tómasson | Baron frá Bala 1 | 6,60 |
| 19-21 | Sylvía Sigurbjörnsdóttir | Kolbakur frá Morastöðum | 6,60 |
| 19-21 | Guðmundur Björgvinsson | Jökull frá Rauðalæk | 6,60 |
| 22 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Sproti frá Enni | 6,47 |
| 23 | Teitur Árnason | Arthúr frá Baldurshaga | 6,23 |
| 24 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Kría frá Kópavogi | 5,93 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Jakob Svavar Sigurðsson | Hálfmáni frá Steinsholti | 7,63 |
| 2 | Matthías Leó Matthíasson | Taktur frá Vakurstöðum | 7,40 |
| 3 | Elin Holst | Frami frá Ketilsstöðum | 7,37 |
| 4 | Hulda Gústafsdóttir | Sesar frá Lönguskák | 7,27 |
| 5 | Árni Björn Pálsson | Hátíð frá Hemlu II | 7,17 |
| 6 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | 7,10 |
| 7 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | Grímur frá Skógarási | 6,87 |
Forsíðumyndin í fréttinni er af Jakobi Svavari og Hálfmána í keppni í úrslitum í fjórgangi, ljósmyndari: Óðinn Örn Jóhannsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH