Jakob Svavar og Lið Hjarðartúns í forystu!

  • 28. febrúar 2020
  • Fréttir

Frá verðlaunaafhendingu í liðakeppni í fjórgangi Mynd: Gísli Guðjónsson

Á vef Meistaradeildarinnar birtist nú rétt í þessu staðan í einstaklings- og liðakeppni eftir þrjár fyrstu greinarnar. Nú er lokið keppni í fjórgangi, slaktaumatölti og Fimmgangi.

Jakob Svavar Sigurðsson sigraði í keppni í fjórgangi á Hálfmána frá Steinsholti, hann varð í fimmta sæti í slaktaumatölti á Vallarsól frá Völlum og sigraði svo keppni í fimmgangi í gærkvöldi á Skýr frá Skálakoti.

Hann hefur því með þessari frábæru byrjun hafið titilvörn sína í Meistaradeildini af glæsibrag en Jakob Svavar sigraði einstaklingskeppnina í fyrsta skipti á síðasta keppnistímabili og ætlar sér greinilega að halda því sæti. Þá fékk hann 55 stig í heildarkeppninni!

Nýstofnað Lið Hjarðartúns hefur komið eins og stormsveipur inn í deildina og er eins og Jakob með töluverða forystu í liðakeppninni. En í liðinu eru auk Jakobs, Þórarinn Ragnarsson, Elvar Þormarsson, Hans Þór Hilmarsson og Helga Una Björnsdóttir liðsstjóri,

Það eru þó ennþá næg stig eftir í pottinum þar sem eingöngu þremur keppnisgreinum af átta er lokið og því getur allt gerst.

Lið Hjarðartúns Mynd: Gunnar Freyr

Staðan í einstaklingskeppni

Knapi Stig
Jakob Svavar Sigurðsson 30
Árni Björn Pálsson 14
Viðar Ingólfsson 13
Teitur Árnason 12
Eyrún Ýr Pálsdóttir 10
Matthías Leó Matthíasson 10
Arnar Bjarki Sigurðsson 10
Elin Holst 8
Jóhanna Margrét Snorradóttir 8
Ásmundur Ernir Snorrason 8
Olil Amble 8
Hulda Gústafsdóttir 7
Hanna Rún Ingibergsdóttir 7
Elvar Þormarsson 7
Helga Una Björnsdóttir 5.5
Þórarinn Ragnarsson 5
Glódís Rún Sigurðardóttir 4
Ragnhildur Haraldsdóttir 2.5
Sigurður Sigurðarson 1.5
Flosi Ólafsson 1.5

Staðan í liðakeppni

Lið Heildarstig Fjórgangur Slaktaumatölt Fimmgangur
Hjarðartún 160.5 46 49.5 65
Hrímnir / Export hestar 129 34.5 52 42.5
Top Reiter 124 35 50 39
Gangmyllan 114.5 39.5 36 39
Hestvit / Árbakki 109.5 41 41 27.5
Eques / Kingsland 95 46 19 30
Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð 86 20 30 36
Ganghestar / Austurás 85.5 38 22.5 25

Dagskrá 

8. mars Sunnudagur 12:10 Gæðingafimi Samskipahöllin, Sprettur, Kópavogur
14. mars Laugardagur 13:00 Gæðingaskeið og 150m. skeið
26. mars Fimmtudagur 19:00 Tölt T1 og flugskeið Samskipahöllin, Sprettur, Kópavogur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link