Jakob valinn Íþróttamaður Dreyra 2009
Stjórn hestamannafélagsins Dreyra hefur valið Jakob Svavar Sigurðsson sem íþróttamann félagsins fyrir árið 2009.
Dreyri tilnefndi Jakob einnig í fyrra og náði hann 3. sæti í kjöri um íþróttamann Akraness 2008. Í ár hefur Jakob ekki setið auðum höndum frekar enn fyrri ár og hefur náð mjög góðum árangri bæði í gæðingakeppni, hestaíþróttum og svo í sýningum kynbótahrossa. Þar hefur hann verið í hitunni meðal allra bestu knapa Íslands enda er ljóst að í þeim hópi er Jakob búinn að festa sig í sessi með frábærum árangri.
Hér fyrir neðan má sjá samantekt yfir árangur Jakobs.
Meistaradeild VÍS:
1. sætið í gæðingafimi á Auð frá Lundum II. 8,25.
2. sætið í fjórgangi á Auð frá Lundum II. 7,73
8. sæti í heildarstigakeppni VÍS ( 9 keppnisgreinar)
Keppnisréttur í Meistaradeildinni fyrir árið 2010
Vetrarmót Grana á Hvanneyri.
3.sæti í fjórgangi á Hæringi frá Litla Kambi.
1.sæti í tölti á Prinsessu frá Birkihlið.
Gæðingamót Fáks í Víðidal.
1.sæti í 100 m skeiði á Fellingu frá Hákoti.
2.sæti í B-flokki á Kaspar frá Kommu.
Íþróttamót Faxa á Miðfossum
1.sæti í fimmgangi á Verði frá Árbæ, 7,38
1.sæti í töli á Gíg frá Hvítanesi, 7,57
Gæðingakeppni Dreyra
1.sætið í B-flokki gæðinga á Kaspar frá Kommu. 8,61
Kaspar valinn glæsilegasti hestur mótsins.
Gæðingamót Faxa.
1.sæti í B-flokkur á Hæring frá Litla-Kambi
2.sæti í A-flokkur á Blæ frá Hesti. – Blær valinn glæsilegasti hestur mótsins
Íþróttamót Snæfellings á Kaldármelum.
1.sæti í tölti á Gíg frá Hítarnesi, 7,50
Fjórðungsmót Vesturlands á Kaldármelum
2. sæti í B-flokki gæðinga á Kaspar frá Kommu. 8,75
2.sæti í A-flokki gæðinga á Blæ frá Hesti. 8,54
Kynbótahross á FM:
1.sæti í 4v stóðhestar á Asa frá Lundum II, Ae: 8,41 (ath. aðeins einni kommu frá heimsmeti!)
4. sæti í 4v stóðhesta á Stikli frá Skrúð, 8,08
5. sæti í 4v stóðhestar á Þyt frá Skáney 8,02
3.sæti 5v hryssur á Þórdísi á Leirulæk 8,13
2. sæti 6v hryssur á Þernu frá Spágilsstöðum, 8,18
Íslandsmótið í Hestaíþróttum á Akureyri
5.sæti í fimmgangi á Verði frá Árbæ, 7,40
8.sæti í gæðingaskeið á Fellingu frá Hákoti.
Íþróttamót Þyts á Hvammstanga
1.sæti í fimmgangi á Verði frá Árbæ, 7,29
1.sæti í tölti á Gíg frá Hvítanesi, 8,11.
Íþróttamót Dreyra, Æðarodda
1.sæti í fimmgangi á Verði frá Árbæ 7,26
2 tilnefningar til knapaverðlauna 2009 á Uppskeruhátíð Landssambands Hestamanna:
(tilnefnt af hestafréttamiðlum og BÍ):
Kynbótaknapi ársins
Gæðingaknapi ársins
Kynbótasýningar
Jakob sýndi 69 kynbótahross á árinu og fengu 35 þeirra 8.00 eða hærra í aðaleinkunn, sem er mjög góður árangur. Stóðhesturinn Kaspar frá Kommu fékk sem dæmi 10 fyrir brokk í höndum Jakobs en slíkar einkunnir eru afar fátíðar.
Að ofantöldu má glöggt sjá að árangur Jakobs er afar góður og eftirtektarverður. Leggja ber áherslu á það að í heimi hestamanna á lands vísu ber nafn Jakobs ávallt upp með jákvæðri ímynd og er hann talinn með í hópi bestu knapa landsins.
Eiðfaxi óskar Jakobi innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH