Jarl frá Miðkrika hlýtur heiðursverðlaun
Jarl frá Miðkrika er einn af þeim stóðhestum sem hjóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hann hlaut í fyrra 118 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins og var þá með 53 dæmd afkvæmi. Jarl er fæddur árið 1995 og er því á 25.vetri. Ræktandi hans er Eyþór Óskarsson en eigendur eru Bent Skrubbeltrang 40% , Stutteri Ny Nørregård v. Jeanette Nielsen 20%, Stutteri Nøddegården v. Søren og Helene Soelberg 20%, Stutteri Teland v. Rune Svendsen 20%. Jarl var fluttur úr landi sem folald.
Jarl er undan heiðursverðlaunahestinum Andvara frá Ey I og hryssunni Huld frá Hvolsvelli. Jarl kom fyrst til kynbótadóms árið 1999 þá fjögurra vetra. Hlaut hann þá fyrir sköpulag 8,03, fyrir hæfileika 7,64 og í aðaleinkunn 7,83. Hann hlaut sinn hæsta kynbótadóm árið 2003 og hlaut hann þá 8,34 fyrir sköpulag, 8,33 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,33. Hlaut hann einkunnina 9,0 fyrir eiginleikanna fótagerð, hófa, tölt, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt stökk. Sýnandi var Stian Pedersen.
Jarl er einn af farsælustu keppnishestum heimsins og er m.a. fjórfaldur heimsmeistari. Árin 2003 og 2005 var hann samanlagðu sigurvegari í fjórgangsgreinum og sigraði keppni í tölti og fjórgangi á heimsmeistaramótinu árið 2007.
Eiðfaxi óskar ræktendum og eigendum til hamingju með árangurinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH