Járningadagar 2016
Hinir árlegu járningardagar Járningamanafélags Íslands verða haldir dagana 11.-12. nóvember n.k. að Miðfossum í Borgarfirði.
Námskeið í jafnvægisjárningum, formbreytingum á skeifum, einnig verður farið í sjúkrajárningar. Íslandsmót í járningum.
Námskeið sem byggist á fyrirlestri og þar sem farið verður yfir helstu atriði varðandi járningar með tilliti til hreyfinga hrossa og smíði á skeifum auk verklegrar kennslu í formbreytingum á skeifum og vinnu í eldi. Reynt verður að stilla verkefnum þannig upp að allir fái eitthvað við sitt hæfi. Reynsla í eldsmíði eða heitjárningum er ekki nauðsynleg.
Tilgangur námskeiðsins er að þátttakendur fái hugmyndir um hvernig hægt er með litlum formbreytingum á skeifum að leiðrétta skekkju í hófum, nota við algengar sjúkrajárningar og hafa áhrif á hreyfiferli hests.
Námskeiðið er ókeypis fyrir skuldlausa meðlimi Járningamannafélags Íslands. Fyrir aðra kr. 10.000,-
Leiðbeinandi á námskeiðinu og dómari á Íslandsmótinu er Lars Andersson. Lars er með meistaragráðu í járningum frá Slus Hovslagarskola. Lars hefur áratugareynslu af járningum bæði á erlendum keppnisbrokkurum og íslenskum hestum. Hann hefur komið að járningum á helstu vekringum í Svíþjóð. Jafnframt hefur hann haft lærlinga frá flestum járningaskólum Svíþjóðar.Dagskrá
Föstudagurinn 11.nóvember
13:00-18:00 Námskeið í jafnvægisjárningum, smíði og formbreytingum á skeifum.
Laugardagurinn 12. nóvember.
13:00-15:00
Opinn dagur járninga þar sem Lars útskýrir fyrir áhorfendum járningar m.t.t. hreyfinga hrossa
15:00-17:00 Íslandsmót í járningum
Skráning: [email protected] eða í síma 863 2361 og 8221959 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 9.nóvember!
Þátttökugjald: Greiðist inn á reikningsnúmer 310-26-006111, kt.611106-0760. Sendið staðfestingu á netfangið [email protected]
Skránin á Íslandsmót í járningum: [email protected] og í síma 863 2361 og 8221959 fyrir 10.nóvember
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH